Tvöfaldi vínyllinn El Duende/Tu Duende er kominn til landsins

Eintök eru til afhendingar í Reykjavík Records á Klapparstígnum.

Bið ykkur sem eigið heimangengt að koma við og sækja ykkar eintak, listinn liggur fyrir í búðinni. Og ef einhver á erindi við mig vegna áritana eða vill heilsa á mig – þá verð ég í búðinn á mánudaginn, þann 5. desember frá klukkan 16 til 18.

Formlegur útgáfudagur er 9. Febrúar 2023.

þegar hjörtun
slá saman
sem eitt
í hryni með músíkinni –
þegar blóðið
rennur, þrátt fyrir allt
upp í mót –
til skyldleika
við mennskuna
– þá er eins og votti fyrir
samhyggð og einingu
og einmitt þá er til fólk sem spyr sig; „af hverju“ ?
alveg út í bláinn.